|
Jafningjafræðslan hefur verið önnum kafin síðustu viku þar sem hún hleypti af stað átakinu „Bagg er bögg“ ásamt því að halda vel heppnaða götuhátíð á Austurvelli. Af þessum sökum hefur Jafningjafræðslan verið mjög áberandi í fjölmiðlum síðustu daga og með því að smella HÉR, HÉR og HÉR er hægt að horfa á sjónvarpsfréttir um Jafningjafræðsluna. Þar fyrir utan höfum við einnig verið mjög áberandi í bæði blöðum og netheimum. Það er hægt að nálgast örfáar myndir frá fjölmiðlaumfjöllun síðustu daga inn í myndasafninu okkar.
Senda á:
|
|
Fyrirmyndar Jafningjafræðsla |
|
Það verður seint sagt um starfsmenn Jafningjafræðslunnar að þeir bindi bagga sína sömu hnútum og samferðamenn sínir. Í síðastliðinni viku tókum við þátt í hvatningarátakinu „Til fyrirmyndar“ sem tileinkað var Vigdísi Finnbogadóttur og íslensku þjóðinni. Nú 30 ár eru liðin síðan við Íslendingar vorum til fyrirmyndar og kusum fyrst þjóða konu sem forseta í lýðræðislegum kosningum. Vigdís Finnbogadóttir er nú velgjörðarsendiherra Menningamálastofnunar Sameinuðu þjóðanna og stendur fyrir söfnun fyrir alþjóðlegri tungumálamiðstöð á Íslandi.
Senda á:
|
|
Nánar...
|
|
Snemma að morgni þann 7. júlí lögðu fræðararnir Kristín, Kristján og Ragnhildur af stað til Egilsstaða, paradísar austursins. Flogið var frá Reykjavíkurflugvelli og gekk flugferðin vel þrátt fyrir hræðslu eins fræðarans, en ekki skal nefna nein nöfn. Það var hann Freyr Ævarsson sem tók hlýlega á móti fræðurum, bauð þá velkomna í heimabæ sinn og keyrði þá beint í Sláturhúsið, menningarsetur heimamanna. Þar hófst frábær fræðsla með krökkum sem höfðu nýlokið við 10.bekk og voru sannarlega til fyrimyndar. Eftir fræðslu skelltu fræðararnir sér í sund, slátruðu börger yfir HM leik kvöldsins og höfðu það notalegt á Gistiheimili Olgu.
Senda á:
|
|
Nánar...
|
|
Jafningjafræðslan og VÍS buðu landsmönnum í allsherjar sumarfagnað niðri á Austurvelli kl. 14 í dag. Götuhátíðin fór ótrúlega vel fram en eins og sést á meðfylgjandi myndum þá var bongóblíða í miðbænum. Fjöldi fólks safnaðist saman og naut veðurblíðunnar við ljúfa tóna og þá var einnig í gangi flóamarkaður og allskonar sprell s.s. leiktæki og götulistamenn. Jafningjafræðslan bauð gestum og gangandi upp á Nova pylsur, Fanta Lemon, Bergtopp, Candy Floss og ONE smokka en samhliða því fór fram smokkakennsla sem vakti mikla lukku og kátínu vegfaranda.
Það má því svo sannarlega segja að sumarið sé komið í Reykjavíkurborg og við viljum öllum þeim sem að hjálpuðu okkur við að koma þessari götuhátíð á koppinn sem var án efa ein sú glæsilegasta frá upphafi. Við viljum einnig þakka öllum þeim mikla fjölda sem að mætti niður á Austurvöll í dag og gerði sér glaðan dag, klapp fyrir ykkur. Það er kominn inn hellingur af ferskum nýjum myndum inn á myndasíðuna okkar hér til vinstri. Gleðilegt sumar!!
Senda á:
|
|
Nánar...
|
|
Jafningjafræðslan og VÍS bjóða landsmönnum að fagna með sér sumrinu á götuhátíð sem að fram fer næstkomandi föstudag kl. 14 á Austurvelli. Hátíðin verður öll með glæsilegasta móti og þar mun fjöldi tónlistarmanna og listamanna stíga á stokk.
Fram koma: Fönksveinar, Kristmundur Axel, Sing for me Sandra, Original Melody, Ramses, Jón Jónsson, GÁVA, The assassin of a beautiful brunette, Friðrik Dór og Raggi Bjarna. Tónlistarmennirnir eru á öllum aldri og til gamans má geta að það munar 61 ári á yngsta og elsta flytjanda á hátíðinni. Þar fyrir utan verður grínarinn Þorsteinn Guðmundsson með gamanmál, hressir parkour strákar sýna listir sýnar ásamt götulistamanninum Wally og flóamarkaður Hins Hússins verður í fullum gangi en þar er hægt að kaupa sér notuð föt ásamt öðru glingri.
Þá verða einnig gefnar pylsur, Fanta lemon, candy-floss og smokkar frá ONE á meðan byrgðir endast. Gestir og gangandi geta einnig unnið sér inn margskonar vinninga frá fjölmörgum fyrirtækjum í happadrætti Jafningjafræðslunnar þar sem miðinn kostar heilar 0 kr. Dregið verður á milli tónlistaratriða. Semsagt mikið að gerast niður á Austurvelli næsta föstudag kl. 14:00 og Jafningjafræðslan er búin að panta bongóblíðu.
Þessi skemmtun er að sjálfsögðu ókeypis og vímulaus!
Senda á:
|
|
Nánar...
|
|
Jafningjafræðsla Hins hússins, Knattspyrnusamband Íslands og Lýðheilsustöð hleyptu af stað átaksverkefninu „Bagg er bögg“ á blaðamannafundi sem að fram fór í höfuðstöðvum KSÍ á Laugardalsvelli í dag. Átakinu er ætlað að sporna við aukinni munntóbaksnotkun hjá ungu fólki, þar sem sérstök áhersla er lögð á unga knattspyrnuiðkendur. Andlit átaksins eru Alfreð Finnbogason landsliðsmaður í knattspyrnu og Sara Björk Gunnarsdóttir landsliðskona í knattspyrnu ásamt jafningjafræðurunum Rúnari Guðbjartssyni og Sigríði Ólafsdóttur, en þau spila einnig knattspyrnu með íslenskum félagsliðum samhliða störfum sínum hjá Jafningjafræðslunni.
Senda á:
|
|
Nánar...
|
|
Nú rétt í þessu frumsýndi Jafningjafræðslan brakandi nýtt og skemmtilegt kynningarmyndband inn á facebook þar sem það hefur vakið mikil viðbrögð. Við skelltum myndbandinu einnig inn á Youtube fyrir þá sem eru ekki með facebook. Hægt er að berja myndbandið augum með því að smella HÉR.
Það er enginn svikinn af því að horfa á þetta myndband en það er sett upp í léttum og skemmtilegum dúr þar sem B-myndastemmingin er látin njóta sín í ystu æsar.
Senda á:
|
|
Nánar...
|
|
Jafningjafræðarinn knái, Gunnar Ingi, komst á spjöld sögunnar fimmtudaginn 24.júní síðastliðinn þegar hann varð fyrsti fræðarinn til að handleggsbrotna í fræðslu. Slysið kom til í grimmilegum hafnaboltaleik þar sem vinnuskólakrakkar af Nónhæð gáfu hinum kappsfulla Gunnari ekkert eftir, sem endaði með fyrrgreindum afleiðingum. Gunnari tókst að brjóta báðar pípur í úlnliðnum og verður í gifsi næstu vikur.
Það er þó ekkert nýtt fyrir Gunnari, hann er alvanur meiðslum og með afsláttarkort á slysó. Við óskum honum góðs bata og vonum að hinir fræðararnir láti þetta vera sér víti til varnaðar í komandi hafnaboltaleikjum sumarsins.
Senda á:
|
|
Nánar...
|
|
|
|
|
|
|
Síða 1 af 10 |