Ráðningarsímtal dauðans

Nú er búið að ráða inn nýjan hóp af Jafningjafræðurum fyrir sumarið 2010 og hann verður kynntur á allra næstu dögum. Þeir sem urðu fyrir valinu að þessu sinni voru í sjöunda himni þegar að þau fengu ráðningarsímtalið en við ákváðum að stríða þeim aðeins í leiðinni og tókum símtalið upp. Það er nú ekkert skrýtið að fólk missi sig aðeins í símanum þar sem árlega sækja um 400-500 ungmenni um vinnu hjá okkur og við getum aðeins ráðið örfáa inn í hvert skipti.

Hægt er að hlusta á upptöku af ráðningarsímtalinu hér:

JavaScript is disabled!
To display this content, you need a JavaScript capable browser.

 

Senda á:

Facebook   
Nánar...
 
Stóra ljósabekkjamálið

solbekkurÍ dag samþykkti Alþingi að fólk undir 18 ára aldri megi ekki nota ljósabekki. Frumvarpið um bannið var samþykkt með 40 atkvæðum gegn 10 og sex þingmenn sátu hjá. Jafningjafræðslan styður þessa nýju löggjöf heilshugar enda er ástæðan  fyrir þessu banni sú að ljósið úr sólbekkjum er krabbameinsvaldandi og að ungt fólk er viðkvæmara fyrir slíkri geislun heldur en þeir sem eldri eru.

Senda á:

Facebook   
Nánar...
 
Bergtoppurinn klikkar aldrei

Vfilfell2Síðastliðin ár hefur JF gefið Bergtopp í allri sinni sumarfræðslu með góðum árangri. Á dögunum var skrifað undir áframhaldandi samstarf á milli Vífilfells (sem framleiðir Bergtopp) og Jafningjafræðslunnar og við erum hæstánægð með það. Árni Árnason, vörumerkjastjóri, skrifaði undir samninginn fyrir hönd Vífilfells og þau  Jón Heiðar Gunnarsson, framkvæmdastjóri, og Hildur Hjörvar, millistjórnandi, skrifuðu undir  fyrir hönd Jafningjafræðslunnar. Áfram Bergtoppur !!

Senda á:

Facebook   
Nánar...
 
Tvö ný myndbönd

P1130685Við smelltum inn á síðuna tveimur "nýjum" myndböndum sem eru tekin úr netfréttum mbl.is. Fyrra myndbandið fjallar um fræðslu Jafningjafræðslunnar í Austurbæjarskóla sem fram fór fyrr á þessu ári og hitt myndbandið fjallar um Götuhátíðina okkar í fyrra.

Hægt er að nálgast myndböndin með því að smella HÉR og HÉR.

Senda á:

Facebook   
 
Loftgæði í Reykjavík
gas_masksÞar sem askan er allsráðandi í Reykjavík þessa daganna þá er gagnlegt að fylgjast vel með svifryksmenguninni. Fjölmiðlar flytja stöðugt fréttir af stöðunni en Inn á þessari síðu http://loft.reykjavik.is/ geta áhugasamir sjálfir fylgst með nýjustu mælingum og skoðað allskonar línurit og gröf. 

Senda á:

Facebook   
 
Slash hættur í ruglinu

slash haettir i ruglinuSlash, sem hefur gert út á þá ímynd í gegnum árin að það sé „kúl að sukka", er nú  loksins búinn að átta sig og er hættur að reykja og drekka . Hann segir að drykkja og reykingar séu of mikil byrgði fyrir sig og að þessi neysla hafi verið orðin leiðinleg. „Það var frábært að hætta að drekka, það var hætt að gera nokkurn hlut fyrir mig enda er maður alltaf að eltast við að endurskapa einhverja horfna minningu þegar maður drekkur, eitthvað sem er búið og gert og kemur ekki aftur“ segir Slash í nýlegu viðtali.

Senda á:

Facebook   
Nánar...
 
ASÍ bætist í hópinn

asi_undirskrift_3_mJafningjafræðslan skrifaði undir samning við ASÍ í dag en samningurinn er beint framhald á góðu samstarfi frá því í fyrra. Við erum gríðarlega heppin af fá jafn öflug samtök til liðs við okkur og við teljum þetta vera góða viðurkenningu á góðu starfi okkar síðastliðin ár. Jón Heiðar Gunnarsson, framkvæmdastjóri, skrifaði undir samninginn fyrir hönd JF ásamt Hildi Hjörvar, millistjórnanda. Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, skrifaði undir samninginn fyrir hönd ASÍ.

Senda á:

Facebook   
Nánar...
 
VÍS í góðum gír

vis_undirskrift_2010_m_logo Jafningjafræðslan skrifaði í dag undir áframhaldandi samstarfssamning við tryggingafyrirtækið VÍS. Þetta öfluga fyrirtæki ætlar aftur að leggja okkur lið í baráttunni með því að styrkja Götuhátíðina okkar í sumar en hún tókst með eindæmum vel síðastliðið sumar. Jón Heiðar Gunnarsson, framkvæmdastjóri, skrifaði undir samninginn fyrir hönd JF ásamt Hildi Hjörvar, millistjórnanda. Sigríður Þorsteinsdóttir, forvarnafulltrúi, skrifaði undir samninginn fyrir hönd VÍS. 

Senda á:

Facebook   
Nánar...
 
« FyrstaFyrri12345678910NæstaSíðasta »

Síða 3 af 10