Nýr millistjórnandi

hildur2Jafningjafræðslan hefur ráðið til sín nýjan millistjórnanda til að fylla skarðið sem að Edda Sigfúsdóttir skildi eftir sig. Nýji millistjórnandinn heitir Hildur Hjörvar og er átján ára menntaskólamær úr Menntaskólanum við Hamrahlíð. Hildur hefur víðtæka reynslu af forvarnar- og félagsstörfum en hún hefur starfað mikið í kringum Jafningjafræðsluna, Dale Carnegie, ÍUT ásamt því að vera virk í félagslífi MH.

Við bjóðum Hildi velkomna til starfa og efumst ekki um að hún eigi eftir að gera góða hluti í sínu starfi.

 

Senda á:

Facebook   
Nánar...
 
Megrunarlausi dagurinn í dag

megrunarlausi dagurinn

Megrunarlausi dagurinn (International No Diet Day) er í dag, fimmtudaginn sjötta maí, en hann er alþjóðlegur baráttudagur gegn megrun, átröskun og fordómum vegna holdafars. Þetta er í fimmta sinn sem dagurinn er haldinn hátíðlegur á Íslandi og í tilefni hans ætla Sigrún Daníelsdóttir sálfræðingur og aðrir sjálfboðaliðar að kynna málstaðinn í Kringlunni og Smáralind milli kl. 15 og 21.

 

Senda á:

Facebook   
Nánar...
 
Edda hættir störfum

edda2Jafningjafræðarinn og millistjórnandinn Edda Sigfúsdóttir hefur ákveðið að flytjast búferlum til Svíþjóðar næsta sumar og mun því ekki taka þátt í næstu verkefnum hjá okkur. Edda er reynslumesti fræðari Jafningjafræðslunnar frá upphafi en hún hefur verið viðloðandi JF frá árinu 2006. Við munum sjá mikið á eftir þessum mikla dugnaðarforki og  reynlsubolta en óskum henni engu að síður alls hins besta um leið og við þökkum henni kærlega fyrir samstarfið síðastliðin ár. 

Senda á:

Facebook   
Nánar...
 
Innflutningsbann á sígarettur

1021547_19652942Nemendur í sjöunda og áttunda bekk Hríseyjarskóla hafa skrifað bréf til þingmanna þar sem þau leggja til að innflutningur á tóbaki til landsins verði bannaður. Auk þess að leggja til bann við innflutningi á tóbaki eru þau með fjölmargar forvitnilegar hugmyndir um hvernig megi vega á móti tekjumissi vegna bannsins.

- Hækka verð á nikótín plástrum og tyggjóum og auka innflutning á því.
- Lýðheilsustöð getur hætt tóbaksvörnum þar sem flestir hætta að reykja
- Sekt fyrir smygl á tóbaki fer í skatt.
- Sjúkrakostnaður minnkar vegna sjúkdóma af völdum reykinga, en árið 2007 voru Íslendingar 262.922 daga á sjúkrahúsi, og þessum dögum gæti fækkað mikið.

Senda á:

Facebook   
Nánar...
 
Jafningjafræðslublaðið 2010

jf_bla_mynd_fyrir_net2Nú hefur fyrsta tölublaðið af tímariti Jafningjafræðslunnar litið dagsins ljós. Blaðið er stútfullt af fróðleik og gleði þar sem Jóhanna Guðrún og Björgvin Páll eru á meðal annars tekin tali.

Það verður enginn svikinn af því að lesa þetta skemmtilega blað og við hvetjum alla til að kíkja á það við fyrsta tækifæri. Hægt er að nálgast blaðið á rafrænu formi með því að smella HÉR 

 

Senda á:

Facebook   
Nánar...
 
Jafningjafræðslan í Morfís

P1070964_copyaMenntaskólinn við Sund bar sigur úr býtum í ræðukeppninni Morfís á dögunum. Jafningjafræðslan átti sína fulltrúa í keppninni því jafningjafræðararnir Árni Kristjánsson og Anton Birkir Sigfússon voru í sitthvoru liðinu í úrslitunum. Árni keppti fyrir hönd Verzlunarskólans en Anton fyrir Menntaskólann við Sund. Við óskum þeim báðum til hamingju með frábæran árangur í þessari mögnuðu keppni.

 

Senda á:

Facebook   
Nánar...
 
Halla í 3. sæti

hallfridur

Jafningjafræðarinn og verslunarskólamærin Hallfríður Þóra Tryggvadóttir söng sig inn í hug og hjörtu landsmanna í Söngvakeppni Framhaldsskólanema sem fram fór á Akureyri á dögunum. Hallfríður lenti í þriðja sæti í keppninni en hún söng lagið "Þar sem framtíðin er" en lagið er íslensk útgáfa af laginu "Dog Days Are Over" eftir Florence and the machine. Við óskum Hallfríði innilega til hamingju með þennan góða árangur. 

Senda á:

Facebook   
Nánar...
 
Kvennó leggur okkur lið

P1130937Nemendur úr bekk 3- FS í Kvennaskólanum mætti niður í Hitt Hús í gær og lögðu hönd á plóginn í nafni jafningjafræðslunnar. Bekkurinn mætti á svæðið og gerði sér lítið fyrir og málaði vegg og annann með frábærum árangri. Við kunnum Kvennaskólanum og  krökkunum í 3-FS bestu þakkir fyrir hjálpina sem að kom sé vægast sagt mjög vel :)

 

Hægt er að skoða skemmtilegar myndir frá þessum degi inn á myndasíðunni okkar hér til vinstri.

 

Senda á:

Facebook   
Nánar...
 
« FyrstaFyrri12345678910NæstaSíðasta »

Síða 4 af 10