Sumarstörf laus til umsóknar

blablaJafningjafræðslan auglýsir eftir starfsmönnum fyrir sumarstarfið 2010. Starfið er lifandi og skemmtilegt, krefjandi og líka góð leið til að leggja sitt af mörkum ásamt því að hafa góð áhrif á samfélagið. Þau sem eru fæddir á árunum 1989 - 1993 geta sótt um. Tekið skal fram að þeir sem hafa lögheimili í Reykjavík ganga fyrir í störfin í flestum tilfellum. Um er að ræða störf Jafningjafræðara hjá Jafningjafræðslunni í sumar ásamt tilfallandi verkefnum næsta vetur. Umsóknartímabili lýkur 6. apríl næstkomandi. Einungis er hægt að sækja um starfið rafrænt með því að smella HÉR.

Senda á:

Facebook   
Nánar...
 
Sólbaðsfíkn er dauðans alvara

solbekkurÍ frétt visir.is kemur fram að hundruð fólks þjáist af sólbaðsfíkn á Íslandi og leitar stöðugt í ljósabekki og sólböð. Þar er einnig tekið viðtal við formann Tanorexíu-félags Íslands en þar reynir fólk að miðla þekkingu sinni og reynslu af sólbaðsfíkn. Um 50 Íslendingar greinast á hverju ári með sortuæxli í húð og árlega deyja um níu manns af þeirra völdum. Húðlæknir segir, ótímabæra öldrun húðarinnar og hættu á húðkrabbameinum ekki eina fylgifisk ljósabekkjanotkunar. Rannsóknir hafi sýnt að bekkirnir séu iðulega gróðrarstía baktería og vitað sé til þess að í þeim hafi fólk smitast af kláðamaur.

Senda á:

Facebook   
Nánar...
 
Sérmerktar myndir úr Photoshop

Einn helsti ráðgjafi ríkisstjórnarinnar á Bretlandseyjum fékk frábæra hugmynd um daginn sem að Jafningjafræðslan styður heils hugar. Ráðgjafinn lagði það til að myndir af fyrirsætum og leikurum í blöðum og tímaritum sem hafa verið "photo-shoppaðar" verði sérstaklega merktar sem slíkar. Sálfræðingur þar í landi hefur sagt að þær fölsku myndir af fullkomnu fólki, sem birtast út um allt, veki upp óöryggi hjá ungum og óhörðnuðum skólabörnum, sérstaklega stúlkum. Sálfræðingurinn vill ekki banna þessa tækni heldur eingöngu að tímarit séu hreinskilin með notkun sína svo að venjulegt fólk geti aðgreint raunveruleikann frá ímynduðum tölvuheim.

Senda á:

Facebook   
Nánar...
 
Jafningjafræðari verður Solla Stirða

Jafningjafræðarinn og Verslunarskólamærin Unnur Eggertsdóttir gerði sér lítið fyrir tryggði sér hið eftirsótta hlutverk Sollu Stirðu úr Latabæ. Unnur var valin úr hópi mörg hundruð umsækjenda en hún er þrátt fyrir ungan aldur komin með gríðarlega mikla reynslu í að koma fram. Þessi tíðindi komu Jafningjafræðslunni lítið á óvart þar sem við vorum fyrir löngu búin að fatta hvað Unnur er frábær - til hamingju Unnur!! 

Senda á:

Facebook   
Nánar...
 
Spennandi tækifæri erlendis!!
Á Útþrá 2010 býðst fólki á aldrinum 16-25 ára að kynna sér þau fjölbreyttu tækifæri sem í boði eru varðandi nám, leik og starf erlendis.
        
Kynningin fer fram þriðjudaginn 9. febrúar á milli 16-18 í Upplýsingamiðstöð Hins Hússins, Pósthússtræti 3-5 og við hvetjum alla áhugasama til að mæta.

Senda á:

Facebook   
Nánar...
 
Austurbæjarskóli og mbl
thadheldegnuJafningjafræðslan kíkti í gær heimsókn í Austurbæjarskóla og hitti þar fyrir hressa krakka í 10. bekk. Umræðuefnið var sjálfsmynd og vímuefni.  Fréttamenn mbl.is litu við og fengu að fylgjast með. Hægt er að horfa á frétt mbl.is með því að smella HÉR

Senda á:

Facebook   
 
Nýja myndir

jaaaa

Jafningjafræðslan hefur verið dugleg að fræða ungt fólk í félagsmiðstöðvum, grunnskólum og framhaldsskólum á höfuðborgarsvæðinu síðustu misseri. Við höfum fengið alveg frábærar viðtökur hjá reykvískum ungmennum sem eru dugleg við að nýta sér okkar þjónustu og við kunnum þeim bestu þakkir fyrir það. Við þurfum engu að síður að leiðrétta ranghugmyndir um áfengi og kannabis í hverri einustu fræðslu.  Þetta sýnir okkur að það er enn gríðarlega mikil þörf fyrir jafningjafræðslu hjá ungu fólki í nútímasamfélagi.

Hægt er að skoða myndir frá Jafningjafræðslu með því að smella HÉR Nýjustu myndirnar eru teknar í Laugalækjarskóla um miðjan desember.

Senda á:

Facebook   
 
Tvítug kona missir báða fæturna í áfengisvímu

Bandarísk kona sem drakk sig meðvitundarlausa þegar hún var að halda upp á tvítugsafmæli sitt missti báða fætur sína í vímunni. Konan heitir Shanna Hiles og hún lagðist í áfengisvímu á gólfinu sitjandi á fótum sér. Þannig var hún í 12 klukkustundir eða þartil hún var flutt á sjúkrahús. Þá var hún búin að missa allan mátt í fótunum sökum blóðrásarteppu. Í framhaldinu voru báðir fætur hennar teknir af við hnéð.

Senda á:

Facebook   
Nánar...
 
« FyrstaFyrri12345678910NæstaSíðasta »

Síða 5 af 10