|
Á að lækka áfengiskaupaaldurinn? |
|
Jafningjafræðarinn og dugnaðarforkurinn, Hildur Hjörvar, settist niður og skrifaði grein sem fjallar um lækkun áfengiskaupaaldurs. Það er óhætt að mæla með þessari grein fyrir allt hugsandi fólk. Þannig að boskapurinn í þessari frétt er eftirfarandi: Ef þú ert hugsandi, lestu þá þessa grein :)
GREININA MÁ LESA MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉR
Senda á:
|
|
Unglingar á Íslandi standa sig betur en jafnaldrar þeirra í Evrópu |
|
Reglulega er kannað hér á landi hvernig íslensk ungmenni standa sig í samanburði við jafnaldra sína í Evrópu. Í nýjustu ESPAD-rannsókninni (2007) sést að unga fólkið á Íslandi stendur sig sérstaklega vel. Niðurstöðurnar sýna m.a. að ungmenni á Íslandi eru almennt til mikillar fyrirmyndar og standa sig yfirleitt betur en flestir jafnaldrar þeirra í Evrópu. Á undanförum árum hefur dregið úr reykingum og neyslu löglegra og ólöglegra vímuefna. Full ástæða er því til að hrósa íslenskum unglingum :)
Niðurstöðurnar sýna m.a. að : 90% drengja og 92% stúlkna hafa aldrei notað kannabisefni, 85% drengja og 82% stúlkna hafa ekki reykt sígarettur síðustu 30 daga, 72% drengja og 65% stúlkna hafa ekki notað áfengi síðustu 30 daga.
Senda á:
|
|
Nánar...
|
|
Hættum að nota ljósabekki!! |
|
Geislavarnastofnanir Íslands, Finnlands, Noregs og Svíþjóðar leggja til að börnum og ungmennum yngri en 18 ára verði bönnuð notkun ljósabekkja. Í tilkynningu frá Geilsavörnum ríkisins segir: „Útfjólublá geislun eykur marktækt líkur á húðkrabbameinum. Börn og ungmenni eru viðkvæmari en aðrir fyrir henni. Þeir sem sólbrenna ungir eiga frekar á hættu að fá illkynja sortuæxli síðar á ævinni."
Illkynja sortuæxli eru talin alvarlegasta gerð húðkrabbameina. Sýnt hefur verið fram á með óyggjandi hætti að sólargeislar og sérstaklega geislar ljósbekkja valda ótímabærri öldrun húðarinnar með hrukkumyndun, æðaslitum og litabreytingum.
Senda á:
|
|
Nánar...
|
|
Ný Dale námskeið að byrja |
|
Dale Carnegie eru búnir að setja upp dagskrá fyrir næstu mánuði og við hvetjum alla áhugasama til að kynna sér málið. Námskeiðin voru upphaflega hugsuð sem ræðunámskeið en í dag eru hugsuð fyrir ungt fólk sem vill efla sjálfstraust, bæta mannleg samskipti og vinna á áhyggjum og kvíða.
Áhugasamir geta skoðað málið betur með því að smella HÉR.
Senda á:
|
|
Ranghugmyndir um Kannabis |
|
Jafningjafræðslan hefur rekið sig á að margt ungt fólk hefur ranghugmyndir þegar kemur að kannabis. Margt ungt fólk heldur að kannabis sé skaðlaust og jafnvel hollt þar sem kannabisplantan er náttúruleg. Margir segjast líka eiga rétt á því að ráða hvort þeir skaði sig eða ekki. Raunveruleikinn er að sjálfsögðu sá að kannabisfíkn er skilgreindur sem alvarlegur sjúkdómur sem hefur skaðleg áhrif á heilann. Þegar einstaklingur er greindur fíkill þá er ljóst að heilinn hefur breyst og skaðast. Það er líka vert að benda á að þótt að einhver hlutur sé náttúrulegur þá þýðir ekki að hann sé skaðlaus sbr. t.d. eitur svörtu ekkjunnar og ýmis lífræn efnasambönd.
Senda á:
|
|
Nánar...
|
|
Jafningjafræðslunni langar að benda áhugasömum á ansi hreint magnaðan vef sem fjallar um kynfræðslu fyrir ungt fólk. Þarna er talað um hlutina á mannamáli og allt útskýrt á einfaldan og skýran hátt.
Mælum með því að allir kíki á þetta.Hægt er að komast á vefinn með því að smella HÉR
Senda á:
|
|
Síðustu vikur hefur verið mikil umfjöllun um skaðsemi orkudrykkja. Jafningjafræðslan vill benda á að neysla orkudrykkja getur verið mjög varasöm og það má alls ekki neita þeirra í miklu magni. Best er að sleppa þeim alveg enda er líkaminn þannig úr garði gerður að hann þarf ekki á slíkum drykkjum að halda. Það er líka vert að benda á að íslenskir innflytjendur límdu óvart límmiða yfir varnaðarorð á umbúðir orkudrykkja þar sem fram kom að neysla orkudrykksins sé ekki æskileg fyrir fólk undir 18 ára aldri.
Jafningjafræðslan hvetur alla til að kynna sér málið vel og taka upplýsta afstöðu
Senda á:
|
|
Nánar...
|
|
Frábær heilsuvefur fyrir ungt fólk |
|

Nú er kominn í loftið frábær vefur um heilsu og þætti sem tengjast henni.
Mælum með því að allir hugsandi unglingar kíki þangað inn: www.6h.is.
Senda á:
|
|
|
|
|
|
|
Síða 6 af 10 |