Friður í kvöld

Í kvöld fer fram skemmtilegur gjörningur á Miklatúni en þar ætlar Heimsgangan að mynda mannlegt friðarmerki. Tilefnið er alþjóðlegur dagur án ofbeldis en ofbeldi er grundvallarmál okkar tíma. Ofbeldi birtist ekki aðeins sem líkamlegt ofbeldi heldur einnig sem efnahagslegt ofbeldi, sálrænt ofbeldi, trúarlegt, kynferðislegt og kynþáttabundið ofbeldi.

 

Við hvetjum alla til að mæta og leggja þessu skemmtilega málefni lið.Gjörningurinn fer fram í kvöld, föstudaginn 2.október, kl. 20:00 á Miklatúni.Blys verða seld á staðnum á 500 kr.

Senda á:

Facebook   
 
Forvarnadagurinn á morgun

forv2

Jafningjafræðslan vill benda á að á morgun, miðvikudaginn 30. september, fer fram forvarnadagurinn á Íslandi. Dagurinn er haldinn í öllum grunnskólum landsins og hann er helgaður nokkrum heillaráðum sem geta forðað börnum og unglingum frá fíkniefnum. Slík ráð eiga svo sannarlega erindi við allar fjölskyldur í landinu.

 

Heimasíða verkefnisins er www.forvarnadagur.is og við mælum með því að allir fylgist vel með þessu frábæra verkefni. Í tilefni af forvarnadeginum verður Jafningjafræðslan með fræðslu í Engjaskóla á morgun. Með því að smella HÉR má sjá sjónvarpsfrétt um forvarnadaginn.

Senda á:

Facebook   
 
Myndbönd dagsins

Jafningjafræðslan tók smá youtube rúnt í morgun og hér fyrir neðan má sjá nokkur myndbönd sem fjalla um sjálfstraust, sjálfsmynd og útlitsdýrkun.

 

 

 

 

 

 

  

Vert er að taka fram að Jafningjafræðslan ber enga ábyrgð á innihaldi myndbandanna.

Senda á:

Facebook   
 
Kisi Kisi

Hinn margrómaði sumarsmellur "Óður til ljótra katta" er nú kominn á fésbókina eftir langa og stranga bið - ekki missa af þessu tímamótaverki í íslenskri tónlistarsögu :)

Smelltum saman myndasýningu úr sumarstafi Jafningjafræðslunnar í myndbandinu.

Njótið vel.


 

Söngur: Perla Magnúsdóttir Gítar: Árni Kristjánsson Höfundar: Árni Kristjánsson, Davíð Már Stefánsson og Perla Magnúsdóttir.

Myndband: Jón Heiðar Gunnarsson

Hljóðupptaka: Arnar Gauti Markússon

Senda á:

Facebook   
 
SMS og akstur fara ekki saman

Hér má sjá myndband þar sem sýnt er fram á þá hættu sem símanotkun getur skapað í umferðinni.

Sýnum skynsemi í umferðinni eins og annars staðar - Tökum ábyrgð á sjálfum okkur og berum virðingu fyrir sjálfum okkur jafnt sem öðrum- Fleiri myndbönd má nálgast HÉR.

Senda á:

Facebook   
 
Allir friðarsinnar að mæta niður á tjörn á morgun

kf2

Senda á:

Facebook   
 
Jafningjafræðslan fer í frí

5690_130714648078_778588078_3155926_7598783_n

Þá er sumarstarfi Jafningjafræðslunnar lokið í ár. Við viljum þakka þeim öllum ungmennum  í Vinnuskóla Reykjavíkur, Vinnuskóla Grindavíkur, Vinnuskóla Seltjarnarnes og í Vinnuskóla Garðabæjar fyrir skemmtilegar samverustundir í sumar ásamt öllum þeim sem að við hittum ÍTR hópunum og í Tipp Topp starfi Hins Hússins.Við viljum einnig þakka öllum þeim sem að lögðu leið sína á Götuhátíðina okkar kærlega fyrir mætinguna og öllum þeim sem að lögðu okkur lið við að koma hátíðinni á koppinn. Við erum búin að setja inn heilan helling af nýjum myndum úr fræðslum sumarsins inn á myndasíðuna okkar - þið getið dundað ykkur við að skoða þær ef það kemur rigningardagur :)

 

NÆSTA MÁL Á DAGSKRÁ ER AÐ SKIPULEGGJA SUNDLAUGARPARTÝ SEM FER FRAM Í SEINNI HLUTA ÁGÚST - ÞETTA VERÐUR AUGLÝST BETUR HÉR Á SÍÐUNNI OKKAR ÞEGAR NÆR DREGUR.

 

Gleðilegt sumar og munum að skemmta saman án allra vímugjafa :)

 

Senda á:

Facebook   
 
Risa sápuboltamót í dag

soap

 

Landnemahópur vinnuskóla Reykjavíkur ætlar að standa fyrir skemmtilegri uppákomu í Hljómskálagarðinum í dag, fimmtudaginn 23. júlí,  en þar fer fram RISA sápuboltamót!

Skráning hefst kl. 15:30 og mótið kl. 16:30. Bæði lið og einstaklingar geta skráð sig. Í hverju liði eru 6 manns. Auk sápuboltans verður farið í limbó, snú-snú og brennó.

Ís, sælgæti og gos í boði á staðnum.

 Allir að mæta í góðum sumarfíling í Hljómskálagarðinn í dag.

Senda á:

Facebook   
 
« FyrstaFyrri12345678910NæstaSíðasta »

Síða 7 af 10