Frábærir tónleikar í kvöld

_mg_5977149021jogvan

Útgáfutónleikar verða utanhúss í frábæru veðri í kvöld í tilefni þess að út var að koma safndiskurinn Sumarstjörnur 2009. Tónleikarnir fara fram á plani N1 á Hringbraut en diskurinn er eingöngu seldur í verslunum N1 um allt land. Diskurinn hefur að geyma 20 ný íslensk lög og þar má m.a. finna flytjendurna Haffa Haff, Heru Björku, Jóhönnu Guðrúnu (með sérstaka sumardansútgáfu af Is it true) Jógvan, Önnu Hlín, BMV, Elektru, Bermuda, Alan og Arnar Þór Viðarsson sem syngur opinbert Gaypride lag Danmerkur í ár. Það verður fullt af skemmtilegum sumarsmellum á plötunni en þar má finna lög eins og Control, Santeria, Sísí (fríkar út), Give Me Sexy, Með sjálfri mér, Is it true (sumardansútgáfa), Do you Belive, My heart, Superman 2009, Ég fer alla leið og Dirty Diana sem öll eru mjög vinsæl í útvarpi um þessar mundir.

Góða skemmtun í góða veðrinu í kvöld :)

Senda á:

Facebook   
 
VÍS styrkir Jafningjafræðsluna

vis_mynd2

Jafningjafræðslan skrifaði í dag undir samstarfssamning við VÍS en eins og við höfðum áður greint frá þá ætlar VÍS að leggja okkur lið í baráttunni í sumar. Það voru þau Jón Heiðar Gunnarsson, framkvæmdarstjóri Jafningjafræðslunnar, og Ragnheiður Davíðsdóttir, forvarnafulltrúi hjá VÍS, sem undirrituðu samninginn. Sú staðreynd að jafn öflugt fyrirtæki og VÍS er tilbúið leggja okkur lið er frábær viðurkenning á okkar starfi og við kunnum VÍS að sjálfsögðu bestu þakkir fyrir stuðninginn. Svo vonum við bara að þessi tímamót séu aðeins byrjunin á farsælu samstarfi til framtíðar :) 

 

Heimasíða VÍS er  HÉR.     

Senda á:

Facebook   
 
Tónleikar

6680_101348804132_814519132_1902365_7668853_nKarlahópur Femínistafélags Íslands kynnir: NEI VIÐ NAUÐGUNUM! Baráttu- og styrktartónleikar gegn kynbundnu ofbeldi. Sódóma Reykjavík, Tryggvagötu 22 - fimmtudaginn16. júlí 2009 kl. 20:00-01:00

 

Karlahópur Femínistafélags Íslands stendur fyrir baráttu- og styrktartónleikum gegn kynbundnu ofbeldi fimmtudagskvöldið 16. júlí kl. 20 á Sódómu Reykjavík við Tryggvagötu 22. Tónleikarnir marka upphafið á áttunda starfsári átaksins Karlmenn segja NEI við nauðgunum! sem nær hápunkti um komandi verslunarmannahelgi. Átakinu er ætlað að vekja athygli á alvarleika nauðgana og hvetja karlmenn til að taka ábyrgan þátt í umræðunni og baráttunni gegn kynbundnu ofbeldi. 

Til að leggja áherslu á að verslunarmannahelgin eigi að vera vettvangur gleði og skemmtunar og jafnframt hvetja almenning til að taka skýra afstöðu gegn nauðgunum munu eftirtaldir hljómsveitir troða upp: Bloodgroup, Retro Stefson, Sometime, Me the slumbering Napoleon, Menn ársins, The Esoteric Gender og MAN ásamt Louise og D.G. Pedrera777.Allir listamenn kvöldsins gefa vinnu sína. Tekið er við frjálsum framlögum við innganginn og rennur allur ágóði tónleikanna til átaksins Karlmenn segja NEI við nauðgunum! sumarið 2009.

Senda á:

Facebook   
 
Stórkostleg götuhátíð að baki

 

Unnur_Eggertsdttirs_picture_17Gtuht_Jafningjafrslunnar_2009_143

Götuhátíð Jafningjafræðslunnar fór fram síðastliðinn föstudag þar sem veðrið skartaði sínu fegusta og fólk lék við hvern sinn fingur á Austurvelli. Mætingin fór fram úr okkar björtustu vonum og við kunnum öllum þeim sem mættu og deildu með okkur þessum magnaða íslenska sumardegi bestu þakkir fyrir.

 

Fjölmiðlaumfjöllunin lét ekki á sér standa og allir helstu miðlar landsins fjölluðu um hátíðina.

Hægt er að horfa á umfjöllun Stöðvar 2 með því að smella HÉR.

Hægt er að horfa á umfjöllun mbl.is með því að smella HÉR. 

Hægt er að lesa umfjöllun Pressunar með því að smella HÉR. 

 

Við erum einnig búin að setja inn fjöldan allan af myndum frá Götuhátíðinni inn í myndasafnið okkar.

 Smellið HÉR til að komast á myndasíðu.

 

Við viljum einnig þakka öllum þeim fyrirtækjum sem gerðu okkur kleift að hafa hátíðina veglega og skemmtilega. Eftirfarandi aðilar og fyrirtæki studdu okkur í þessu verkefni: 10-11, Addi og Gunni tæknimenn, Alcan, ASÍ, Byko, Fiskimarkaður Íslands, Goði, Gunnar Majones, Hexa, Hitt Húsið, Íslenska Gámafélagið, ÍTR, Landnemahópur Vinnuskóla Reykjavíkur, Logi og Bjöggi (www.thesilver.is), Lyng ljósritunarstofa, Lýðheilsustöð, Mási og Haukur sendibílstjórar með meiru, Myllan, Nói Siríus, Reyjavíkurborg, Serrano, Smokkur.is, Sprell.is, Umbúðaleigan, Valli sport (www.pipar.is), Vífilfell, Vís og Wally. Að lokum er vert að taka fram að við erum einnig afar þakklát öllum þeim hljómsveitum sem að stigu á stokk en þau voru öll að flytja tónlist í hreinni sjálfboðavinnu.

 

Ekki má gleyma að þakka Alþingi fyrir en þingheimur lét lætin yfir sig ganga á meðan að ESB umræðurnar fóru fram :)

Takk fyrir okkur og gleðilegt sumar!

 

Senda á:

Facebook   
 
Götuhátíð - allir að mæta!!

Gtuht_Pster_nota

 

Veðurstofan spáir bongó blíðu á föstudaginn :)

Sjáumst hress og kát 

Senda á:

Facebook   
 
Götuhátíð

Götuhátíð Jafningjafræðslunnar fer fram á Austurvelli föstudaginn 10. júlí næstkomandi og þar mun fjöldi ungra tónlistarmanna stíga á stokk. Þar á meðal má nefna Haffa Haff, Kicks, Sing for me Sandra, Bróðir Svartúlfs, Bermuda, BMV, Önna Hlín, Jón Ragnar Jónsson, We went to space, Odd Júlíusson, Írisi Hólm, Ramses og fleiri góða.

Ásamt tónlistarveislunni ætlum við einnig að bjóða upp á allskonar sprell og verðum með fullt af skemmtilegum hlutum í gangi eins og t.d. mini golf. Wally götulistamaður verður einnig á svæðinu og við ætlum að bjóða gestum og gangandi upp á grillaðar pylsur, nammi, smokka, candy floss og ég veit ekki hvað og hvað á meðan birgðir endast. Við verðum einnig með léttar þrautir í gangi þar sem gestum og gangandi gefst kostur á að vinna sér verðlaun.

       

Þessi skemmtun er að sjálfsögðu ókeypis og vímulaus!

Sjáumst öll í bongó-blíðu niður á Austurvelli 10 júlí næstkomandi :)

Senda á:

Facebook   
 
Nýjar myndir úr fræðslum sumarsins

p1050893

 p1050973

 

Nú hafa nýjir jafningjafræðarar lokið stífu og krefjandi undirbúnings-námskeiði og eru farnir út á akurinn til að fræða. Fræðslurnar hafa farið virkilega vel af stað og við höfum fengið frábærar móttökur bæði hjá ungmennum í Vinnuskóla Reykjavíkur og hjá ÍTR hópum.

Hægt er að nálgast nýjar myndir úr fræðslum í Grandaskóla og frá Frístundamiðstöðinni Kampi inn á myndasíðunni okkar.  Einnig eru komnir inn nýjar myndir frá lokadegi námskeiðisins. Njótið vel :)

 

Senda á:

Facebook   
 
Styrkur úr Forvarnasjóði

 

Forv_sj__Hopmynd2Forv_sj__Ogmundur_1

Jafningjafræðslan hlaut á dögunum styrk úr Forvarnasjóði. Úthlutun úr sjóðnum fór fram í Austurbæjarbíói sem er Hús unga fólksins. Það var heilbrigðisráðherra, Ögmundur Jónasson, sem úthlutaði styrkjum úr sjóðnum til 45 mismunandi verkefna og sem betur fer var Jafningjafræðslan þar á meðal. Jón Heiðar Gunnarsson og Edda Sigfúsdóttir tóku við styrknum fyrir hönd Jafningjafræðslunnar.

Það má nálgast myndir úr athöfninni inn á myndasíðunni okkar.Nánari upplýsingar um sjóðinn má nálgast hér: http://www.lydheilsustod.is/frettir/avvr/nr/2799

Senda á:

Facebook   
 
« FyrstaFyrri12345678910NæstaSíðasta »

Síða 8 af 10