Tölvufíkn

Tölvufíkn er að verða vaxandi vandamál í hinum vestræna heimi og þar á meðal á Íslandi. Meðfylgjandi er mjög truflandi myndband  en þar sést strákur missa alla stjórn á sjálfum sér eftir að móðir hans lokaði  World of Warcraft reikningnum hans.

 

 

Hér má lesa nokkrar greinar um tölvufíkn: http://www.lydheilsustod.is/greinar/fjolmidlaumfjollun/tolvufiknr/nr/1509

http://www.totalradgjof.is/jafningjafraedslan/index.php?option=com_content&view=article&id=91:toelvuleikjafikn&catid=1:greinar&Itemid=8

http://www.lydheilsustod.is/greinar/fjolmidlaumfjollun/tolvufiknr/nr/1508

http://www.spilavandi.is/index.php?option=com_content&task=view&id=261&Itemid=11

http://this.is/tolvufikn/

 

Senda á:

Facebook   
 
Mögnuð auglýsingaherferð

Styrktarsjóður Susie hefur farið af stað með magnaða auglýsingaherferð sem allir hafa gott að horfa á. Tilgangur herferðarinnar er að vekja fólk til umhugsunar um að fíkn gerir ekki mannamun. Það skiptir ekki máli hver þú ert eða hvaðan þú kemur, hver sem er getur orðið fíkninni að bráð. Margt ungt fólk sem neytir fíkniefna telur þau vera skaðlausa skemmtun, að þau hafi fulla stjórn á neyslunni og verði aldrei fíklar. Raunveruleikinn er að sjálfsögðu annar eins og þessum auglýsingum. Við birtum tvær auglýsingar hér fyrir neðan en alls hafa verið framleiddar fimm auglýsingar.  

Heimasíða sjóðsins er:  http://www.styrktarsjodursusie.is/

 

Senda á:

Facebook   
 
Frábær tíðindi hér á ferð

2009_vis_an_stafa_lti  ASI_Logo_v3_CMYK-2_lti

Jafningjafræðslan hefur fengið til liðs við sig tvo öfluga samstarfsaðila sem eru til í að leggja okkur lið í sumar. Þessir aðilar eru ASÍ og VÍS. Við lítum á þetta sem frábæra viðurkenningu á okkar starfi þar sem báðir þessir aðilar eru gríðarlega öflugir á sínu sviði. Við erum afar þakklát fyrir stuðninginn og vonandi er þetta aðeins byrjunin á farsælu samstarfi til framtíðar. Heimasíða ASÍ er HÉR og heimasíða VÍS er HÉR.     

Senda á:

Facebook   
 
Fullt af nýjum myndum

 p1080790p1090066

Nú er sumarnámskeið Jafningjafræðslunnar í fullum gangi. Á námskeiðinu eru kennd ýmis hagnýt fræði frá fagaðilum ásamt því að fræðararnir okkar hljóta þjálfun í raddbeitingu og framkomu. Síðustu daga hafa farið fram tæplega 30 fyrirlestrar og það hefur mikið gengið á.  Þið getið skoðað myndir frá námskeiðinu í myndaalbúminu okkar hér til vinstri.Virkilega skemmtilegar og líflegar myndir hér á ferð!

Senda á:

Facebook   
 
Dale Carnegie og Jafningjafræðslan

 p1080290

Það gleður okkur að tilkynna að Jafningjafræðslan hefur hafið samstarf við Dale Carnegie á Íslandi. Jón Halldórsson þjálfari frá Dale Carnegie hefur komið að þjálfun jafningjafræðaranna okkar síðustu daga og það hefur vakið virkilega góðar undirtektir. Dale Carnegie sérhæfir sig í að efla sjálfstraust, bæta mannleg samskipti, bæta framkomu og vinna á áhyggjum og kvíða. Jafningjafræðslan getur því frá fyrstu hendi mælt með því frábæra starfi sem Dale Carnegie stendur fyrir. Fyrir þá sem hafa áhuga á Dale er bent á að smella HÉR.  

Senda á:

Facebook   
 
Áhrif kannabisefna

Viltu fá að sjá hvernig afleiðingar kannabis eru í raun?

Bresk samtök hefur búið til frábæran vef um málið, smelltu HÉR til að prófa. 

Senda á:

Facebook   
 
Metfjöldi sótti um sumarstörf

pyramid 7

Um 500 ungmenni sóttu um 9 lausar stöður hjá Jafningjafræðslunni í ár en vanalega sækja um 100 til 150 ungmenni um þessi störf. "Þetta er gríðarlega mikil auking frá síðustu árum en það hafa aldrei jafn margir sótt um laus störf hjá okkur" segir Jón Heiðar Gunnarsson framkvæmdarstjóri Jafningjafræðslunnar. Jón segir að það hafi ekki verið auðvelt val að velja aðeins 9 ungmenni úr 500 manna hóp en það hafi þó tekist eftir langt og strangt ráðningarferli. Hann bætir við að þetta sé i fyrsta skiptið sem að strákar séu í meirihluta í hópnum. „Hópurinn er eins og gefur að skilja mjög þéttur og góður enda vorum við með efnivið sem hefði dugað í nokkra mjög frambærilega hópa."    

Senda á:

Facebook   
Nánar...
 
Alcan leggur okkur lið

 

screenhunter_0220sep_20302013_24

Jafningjafræðslan hlaut nú á dögunum styrk úr samfélagssjóði Alcan upp á 100.000 kr. Af því tilefni birtum við þessa mynd af dugnaðarforkinum Rannveigu Rist en hún er einmitt forstjóri Rio Tinto Alcan á Íslandi. Við kunnum Alcan að sjálfsögðu bestu þakkir fyrir stuðninginn enda veitur okkur ekki af fjármagninu á þessum seinustu og verstu tímum :) Samfélagssjóður Alcan hefur verið duglegur að styrkja okkur og önnur samfélagsleg verkefni síðastliðin ár og þið getið lesið ykkur til um samfélagssjóðinn með því að smella HÉR.

Senda á:

Facebook   
 
« FyrstaFyrri12345678910NæstaSíðasta »

Síða 9 af 10