|
Við erum komin á Facebook |
|

Jafningjafræðslan er komin á andlitsbókina, flettismetti, vinbókina eða hvað sem þið viljið kalla samskiptavefinn facebook. Þú kemst inn á facebook síðuna okkar með því að smella HÉR. Að sjálfsögðu verður maður að vera skráður sjálf/ur með facebook reikning til að geta komist inn á síðuna. Sjáumst þar :)
Senda á:
|
|
Jafningjafræðslan á blússandi siglingu |
Jafningjafræðslan hefur svo sannarlega ekki legið í dvala í vetur. Við höfum haldið fjölmargar fræðslur í framhaldsskólum bæði á höfuðborgarsvæðinu og úti á landsbyggðinni. Þar fyrir utan þá höfum við einnig verið dugleg að herja á ungmenni í félagsmiðstöðvum.
Jafningjafræðararnir Edda, Ívar og Rúnar hafa séð um fræðsluna í vetur og hafa lagt aðaláherslu á að fjalla um sjálfsmynd og vímuefni. Þau hafa öll farið á kostum í vetur enda eru þau öll þaulvanir fræðarar sem hafa mikinn metnað fyrir verkefninu. Augljóst er að þessi málefni eiga brýnt erinda við íslensk ungmenni í dag því það myndast gjarnan líflegar umræður í fræðslunum. Við settum inn nýjar myndir sem við tókum í fræðslu í MS inn á myndasíðuna okkar.
Senda á:
|
|

Eins og glöggir lesendur hafa væntanlega tekið eftir þá hefur síðan okkar fengið veglega andlitslyftingu. Við höfum breytt öllu skipulagi á síðunni. Við erum komin með nýtt útlit og höfum því horfið frá þeirri reynslu síðustu ára þar sem ávallt var opnuð ný síða fyrir hvert sumar. Við ætlum frekar að leggja allan okkar metnað (og það takmarkaða fjármagn sem við höfum úr að moða) í að gera þessa síðu sem besta og sem aðgengilegasta.
Við erum búinn að dæla inn efni á síðuna síðustu daga og þar má á meðal annars nefna fjöldann allan af myndböndum og áhugaverðum greinum eftir fræðara.
Góða skemmtun 
Senda á:
|
|

Jafningjafræðslan í samstarfi við Mannréttindaskrifstofu Íslands og Amnesty býður til kvikmyndaveislu í Hinu húsinu fimmtudaginn 4.desember. Hátíðin er haldin af tilefni af 16 daga átaki gegn kynbundnu ofbeldi. Sýndar verða 2 áhugaverðar heimildarmyndir og umræður fara fram að sýningu lokinni.
Önnur myndin ber heitið Más allá del papel (Ekki bara orðin tóm) og fjallar á áhrifaríkan hátt um heimilisofbeldi á Spáni og þær hindranir og erfiðleika sem konur standa frammi fyrir er þær reyna að flýja úr ofbeldisfullum samböndum. Hin heimildamyndin ber titilinn, Lumo. Hún segir frá baráttu tvítugrar konu í Austur Kóngó fyrir bata í stríðshrjáðu landi þar sem hermenn og skæruliðar nota nauðgun sem vopn til að vekja hræðslu og skelfingu.
Sýningin fer fram í kjallara Hins Hússins frá 17:00 til 19:00. Myndirnar eru samtals um einn og hálfur tími að lengd, með enskum texta, og verður kaffi á könnunni og umræður að sýningu lokinni.Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.Nánari upplýsingar má finna á vefnum: http://mannrettindi.is/servefir/16dagar.
Senda á:
|
|

Nýr framkvæmdarstjóri Jafningjarfræðslunnar tók til starfa í September árið 2008. Nýji framkvæmdarstjórinn heitir Jón Heiðar Gunnarsson en hann hefur getið sér gott orð bæði sem handboltamaður og íþróttafréttamaður. Jón er einnig með BA gráðu í heimspeki og atvinnulífsfræði frá Háskóla Íslands. Jón tekur við góðu búi af forvera sínum, Ösp Árnadóttur, en hún hefur lagt land undir fót og er farin erlendis í mastersnám í sálfræði.
Við bjóðum Jón velkominn til starfa og óskum honum velfarnaðar í starfi. Einnig viljum við þakka Ösp fyrir sína frábæru vinnu síðustu ár.
Lengi lifi Jafningjafræðslan
Senda á:
|
|
|
|
|
Síða 10 af 10 |