|
Í síðustu viku heimsótti Jafningjafræðslan Vinnuskóla Norðurþings á Húsavík og hitti þar krakka í 8.-10.bekk. Fræðslan tókst glimrandi vel og þótti fræðurunum Hildi, Ívari og Siggu stórskemmtilegt að hitta þennan hressa hóp fyrir norðan. Þökk sé framúrskarandi þekkingu Hildar í íslenskri landafræði voru næstum pantaðir flugmiðar til Egilsstaða (sem, eins og glöggir lesendur ættu að vita, er ansi langt frá Húsavík) en það bjargaðist sem betur fer í tæka tíð. Húsvíkingar voru áhugasamir og líflegir upp til hópa eins og sést á meðfylgjandi mynd, og fleiri má finna í myndasafninu.
Senda á:
|
|
Nánar...
|
FIT (félag iðn- og tæknigreina) hefur bæst í hópinn yfir velunnara Jafningjafræðslunnar. Það er frábær viðurkenning á okkar starfi að fá jafn öflugt samtök og FIT er til samstarfs við okkur en FIT lætur sér vinnuréttindi ungs fólk varða. Jón Heiðar Gunnarsson og Hildur Hjörvar skrifuðu undir samninginn fyrir hönd JF en Hilmar Harðarson, formaður FIT, skrifaði undir fyrir hönd FIT.
Senda á:
|
|
Metfjöldi fékk vinnu í sumar |
|
Aldrei áður hafa jafn mörg ungmenni fengið vinnu við Jafningjafræðslu Hins Hússins áður en alls fengu 19 ungmenni á aldrinum 17-21 árs vinnu í sumar. Þessi störf eru gríðarlega eftirsóknarverð en árlega sækja um 400-500 ungmenni um störfin. Hægt að horfa á stórskemmtilegt myndband frá því þegar að jafningjafræðurunum var tilkynnt að þau hefðu orðið fyrir valinu með því að smella HÉR
„Vanalega höfum við eingöngu ráðið inn um 10 manns þannig að þessi stóri hópur er gríðarlega öflug innspýting í allt okkar starf og við bindum miklar vonir við hann“ segir Jón Heiðar Gunnarsson, framkvæmdarstjóri Jafningjafræðslunnar. Hann segir hópinn vera mjög þéttan og góðan enda þurfa ungmennin að komast í gegnum langt og strangt ráðningaferli til að fá vinnu hjá Jafningjafræðslunni.
Senda á:
|
|
Nánar...
|
|
Snoop Dogg var bannað að koma fram á tónleikum í Hollandi vegna sögusagna um kannabisnotkun hans. Yfirvöld og lögregla í hollensku borginni Haag þrýstu á aðstandendur hátíðarinnar að afbóka Snoop þar sem hann þykir ekki vera með nægilega góða ímynd. Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem að dyrum er skellt í lás fyrir Snoop en honum var bannað að koma til Bretlands fyrir tveimur árum og honum hefur einnig verið bannað að ferðast til Ástralíu.
Senda á:
|
|
Nánar...
|
|
Nýtt borgarráð samþykkti á dögunum að öll börn og unglingar (yngri en 18 ára) fá frítt í sund í Reykjavík í sumar. Þetta er á meðal fyrstu verka sem að nýtt borgarráð kemur í verk og þar fer nýr borgarstjóri Reykjavíkur, Jón Gnarr, mikinn en hann heldur því fram að „blautur borgari sé glaður borgari“. Jafningjafræðslan hvetur því alla til að henda sér út í næstu sundlaug og skemmta sér þar vel í sumar.
Senda á:
|
|
Nánar...
|
|
Bindindisfélagið IOGT fór nýlega af stað með átak gegn áfengisakstri. Ástæðan er sú að áfengisakstur er stórt og alvarlegt samfélagsmein í íslensku samfélagi en 23 einstaklingar dóu á árunum 2005-2009 af völdum ölvaðra ökumanna. Þar fyrir utan slösuðust 62 einstaklingar mjög alvarlega á þessu tímabili vegna ölvunaraksturs.
Senda á:
|
|
Nánar...
|
|
Ungum sprautufíklum fækkar |
|
Þórarinn Tyrfingsson, yfirlækni á Sjúkrahúsinu Vogi, segir að uppi séu vísbendingar um að aldur þeirra sem eigi í mestum vímuefnavanda sé að hækka. Þetta sést á því að meðalaldur þeirra sem hafa komið á meðferðastöðina Vog vegna sprautufíknar hefur hækkað töluvert á undarförnum árum. Það eru einnig minna um að fólk yngri en tvítugt sé að sprauta sig í fyrsta skipti. Þetta eru að sjálfsögðu mjög jákvæðar tölur sem sýna að ungt fólk í dag er meðvitaðra og upplýstara heldur en áður, Jafningjafræðslan ásamt Borat setur stórt „like“ á það J.
Senda á:
|
|
Nánar...
|
|
Jafningjafræðslan heldur sér á lífi |
|
Úthlutað hefur verið úr Forvarnasjóði Lýðheilsustöðvar fyrir árið 2010. Alls bárust umsóknir um 129 verkefni og sem betur fer varð umsókn Jafningjafræðslunnar fyrir valinu að þessu sinni. Jafningjafræðslan gæti varla lifað án þess að fá þennan styrk og þessvegna erum við alveg í skýjunum yfir þessu.
Í ár voru umsóknir metnar með tilliti til stefnu ríkisstjórnarinnar um að efla heilsugæsluna og lýðheilsustarf og forvarnir á þeim grunni, eins og kom fram í auglýsingu um umsóknir úr sjóðnum .Að þessu sinni var ríflega 71 milljón kr. úthlutað til 79 verkefna þar af er sérstök fjárveiting, 15 milljónir, sem ætluð er til sérstakra heilsueflingaverkefna.
Senda á:
|
|
Nánar...
|
|
|
|
|
|
|
Síða 2 af 10 |