| Hugmyndafræði og saga |
|
Jafningjafræðsla framhaldskólanna var stofnuð á Íslandi árið 1996 af menntaskólanemum sem studdu sig við danska fyrirmynd. Upphaflega var Jafningjafræðslan stofnuð til að sporna við og draga úr neyslu vímuefna en á þessum tíma hafði fíkniefnanotkun skyndilega aukist hér heima. Stuttu áður en Jafningjafræðslan var stofnuð á Íslandi svipti 17 ára drengur sig lífi eftir að hafa neytt e-pillu kvöldið áður. Hugmyndafræði okkar er í stuttu máli sú að "ungur fræðir unga". Það sem felst í þessu er að forvarnir eru unnar af ungu fólki fyrir ungt fólk. Þessi hugmyndafræði hefur verið notuð lengi og það er t.d. talið að jafningjafræðsla hafi verið notuð sem kennsluaðferð á 18. öld. Út um allan heim eru til verkefni sem byggja á þessari hugmyndafræði og má þar t.d. nefna verkefni í Saudi Arabíu og Senegal. Fjölbreytileiki starfandi verkefna sem byggja á þessari hugmyndafræði er mjög mikill. Þó er í flestum tilfellum unnið að kennslu eða forvörnum gegn ýmiskonar heilsufarslegum vandamálum s.s. HIV smiti, óábyrgri kynlífshegðun, vímuefnaneyslu o.fl. Starfsemi Jafningjafræðslunnar á Íslandi hefur breyst mikið í takt við tíðarandann og í dag er Jafningjafræðslan rekin af Hinu Húsinu í Reykjavík. Fyrstu árin eftir að Jafningjafræðslan var stofnuð var aðallega einblínt á fíkniefnaforvarnir en í seinni tíð hefur einnig verið lögð áhersla á sjálfsmynd ungs fólks og leitast við að styrkja hana og efla. Helsta ástæðan er sú að ýmsir fræðimenn telja að ýmis áhættuhegðun tengist sterklega slakri sjálfsmynd. Sterk sjálfsmynd er besta veganestið sem unglingar fá út í lífið þar sem hún eykur velgengni og vellíðan. Með því að styrkja sjálfsmyndina þá náum við m.a. að forvörnum gegn óábyrgri áfengisneyslu, gegn vímuefnaneyslu, ótímabæru brottfalli úr skóla, ofbeldi, óábyrgu kynlífi og geðheilsubrestum o.s.frv.
Fræðsla Jafningjafræðslunnar er gagnvirk og unnin á jafnréttisgrundvelli þar sem allir íslenskir fræðarar eru sjálfir á aldrinum 17-21 árs. Jafningjafræðarar klæða sig á svipaðan hátt, hegða sér á svipaðan hátt og hafa svipaðan reynsluheim og ungmennin sem þau eru að fræða. Rannsóknir sýna nefnilega að ungt fólk er móttækilegra fyrir boðskap frá fólki sem er á svipuðu aldursbili og þau sjálf heldur en frá eldra fólki. Ungmennin samsama sig með fræðurunum, hlusta frekar og eru óhræddari við að tjá sig við slíkar aðstæður heldur en þegar eldra fólk predikar yfir þeim. Jafningjafræðarar eru einstaklingar sem eiga auðvelt með að ná til fólks, eru sjálfsöruggir og jákvæðar fyrirmyndir. Valdir eru einstaklingar sem að önnur ungmenni vilja líkjast. Þar sem Ísland er lítið samfélag þá er gríðarlega mikilvægt að jafningjafræðarar séu einnig góðar fyrirmyndir í sínu einkalífi og stundi sjálf það líferni sem þau boða. Þetta er það sem oft er kallað tvöföld virkni Jafningjafræðslunnar, samræðurnar annars vegar og virkni fyrirmynda hins vegar. Störf jafningjafræðara eru mjög eftirsóknarverð hjá ungu fólki og allir fræðarar þurfa að gangast í gegnum strangt ráðningarferli og inntökupróf. Árlega þurfa margir hæfir einstaklingar frá að hverfa í ráðningarferlinu og í ár sóttu til að mynda 500 ungmenni um 9 lausar stöður hjá Jafningjafræðslunni . Starfið er mjög krefjandi og fræðarar verða að vera vel í stakk búnir til að taka á móti fyrirspurnum af ýmsu tagi og þess vegna hljóta þeir tveggja vikna þjálfun áður en lagt er upp í fræðslu. Á undirbúningsnámskeiðinu eru kennd ýmis hagnýt fræði frá fagaðilum ásamt því að fræðarar eru þjálfaðir í raddbeitingu og framkomu.
Við bjóðum ungmennum upp góða og hnitmiðaða fræðslu í félagsmiðstöðvum, grunnskólum, framhaldsskólum og í vinnuskólum ásamt því að skipuleggja vímulausar uppákomur af ýmsu tagi. Við fræðum ungmennin um margvísleg málefni, svörum spurningum og brjótum daginn upp með skemmtilegum og fræðandi hópeflisleikjum. Við bjóðum ungmennum upp á fræðslu þar sem fram koma rök sem mæla með heilbrigðum lífstíl og gegn skaðlegri hegðun. Í fræðslu er bent á gildi góðrar sjálfsmyndar og heilbrigðs lífsstíls, ókosti vímuefnaneyslu auk þess sem fólk er styrkt til að standast hópþrýsting (að betra sé að sleppa heldur en að prófa). Fræðslunnar okkar eru mjög gefandi fyrir ungt fólk þar sem þau fá sjálf að láta ljós sitt skína í umræðunum og í hópeflinu. Þátttakendur taka með sér í veganesti jákvæðan, uppbyggilegan og þroskandi lærdóm sem þau geta svo vonandi nýtt sér í sínu eigin lífi. Starf Jafningjafræðslunnar hefur tvímælalaust skilað góðum árangri í gegnum árin. Unglingar hafa margir hverjir mótað skoðanir sínar um mikilvæg málefni í framhaldi af fræðslu frá okkur og við höfum fengið að heyra fjölmargar reynslusögur þar sem fram kemur að fólk hafi snúið lífi sínu til betra horfs eftir að hafa fengið Jafningjafræðsluna í heimsókn. Þá segjast margir hafa fundið styrkinn til að segja nei við hópþrýstingi í framhaldi af fræðslu frá okkur. Að okkar mati þá er gríðarlega mikil þörf fyrir jafningjafræðslu hjá ungmennum í nútímasamfélagi og við teljum að allir eigi rétt á a.m.k. einni slíkri fræðslu á sínum unglingsárum. Reynsla okkar sýnir að það eru gríðarlega miklar ranghugmyndir í gangi hjá ungu fólki varðandi t.d. kannabis og áfengi en við leiðréttum slíkar ranghugmyndir í hverri einustu fræðslu. |