Metfjöldi fékk vinnu í sumar

Hpmynd_2010Aldrei áður hafa jafn mörg ungmenni fengið vinnu við Jafningjafræðslu Hins Hússins áður en alls fengu 19 ungmenni á aldrinum 17-21 árs vinnu í sumar. Þessi störf eru gríðarlega eftirsóknarverð en árlega sækja um 400-500 ungmenni um störfin. Hægt að horfa á stórskemmtilegt myndband frá því þegar að jafningjafræðurunum var tilkynnt að þau hefðu orðið fyrir valinu með því að smella HÉR

„Vanalega höfum við eingöngu ráðið inn um 10 manns þannig að þessi stóri hópur er gríðarlega öflug innspýting í allt okkar starf og við bindum miklar vonir við hann“ segir Jón Heiðar Gunnarsson, framkvæmdarstjóri Jafningjafræðslunnar. Hann segir hópinn vera mjög þéttan og góðan enda þurfa ungmennin að komast í gegnum langt og strangt ráðningaferli til að fá vinnu hjá Jafningjafræðslunni.

   

   

Jafningjafræðslan fer um víðan völl í sumar og fræðir ungt fólk um forvarnartengd málefni.. Farið er inn á þætti eins og t.d. sjálfsmynd, vímuefni, kynlíf, klám átraskanir, tölvufíkn og munntóbak. Áhersla er lögð á að tala um það jákvæða sem fylgir því að sleppa öllu rugli og styrkja fólk til þess að standast hópþrýsting, að betra sé að sleppa heldur en að prófa.

Hpmynd_JF_liggjandi

 

Senda á:

Facebook