Halló Húsavík

New_Picture_3Í síðustu viku heimsótti Jafningjafræðslan Vinnuskóla Norðurþings á Húsavík og hitti þar krakka í 8.-10.bekk. Fræðslan tókst glimrandi vel og þótti fræðurunum Hildi, Ívari og Siggu stórskemmtilegt að hitta þennan hressa hóp fyrir norðan. Þökk sé framúrskarandi þekkingu Hildar í íslenskri landafræði voru næstum pantaðir flugmiðar til Egilsstaða (sem, eins og glöggir lesendur ættu að vita, er ansi langt frá Húsavík) en það bjargaðist sem betur fer í tæka tíð. Húsvíkingar voru áhugasamir og líflegir upp til hópa eins og sést á meðfylgjandi mynd, og fleiri má finna í myndasafninu.

 

Því miður láðist okkur þó að ná mynd af fótboltaleikjunum þar sem margir sýndu snilldartakta, enda mikil þátttaka í skipulögðu íþróttastarfi hjá Völsungi. Í hádeginu fóru fræðararnir út að borða á veitingastaðnum Sölku, þar sem Ívar setti Íslandsmet í hraða flatbökuáts. Að fræðslu lokinni skelltu fræðararnir sér svo í sund á Akureyri og í kvöldmat á Greifanum, þar sem Ívar sýndi aftur hæfileika sína með flatbökunum, áður en flogið var aftur heim um kvöldið. Jafningjafræðslan þakkar kærlega fyrir sig og vonast til að geta heimsótt Húsavík fljótt aftur!

New_Picture_3

 

Senda á:

Facebook