|
Jafningjafræðarinn knái, Gunnar Ingi, komst á spjöld sögunnar fimmtudaginn 24.júní síðastliðinn þegar hann varð fyrsti fræðarinn til að handleggsbrotna í fræðslu. Slysið kom til í grimmilegum hafnaboltaleik þar sem vinnuskólakrakkar af Nónhæð gáfu hinum kappsfulla Gunnari ekkert eftir, sem endaði með fyrrgreindum afleiðingum. Gunnari tókst að brjóta báðar pípur í úlnliðnum og verður í gifsi næstu vikur.
Það er þó ekkert nýtt fyrir Gunnari, hann er alvanur meiðslum og með afsláttarkort á slysó. Við óskum honum góðs bata og vonum að hinir fræðararnir láti þetta vera sér víti til varnaðar í komandi hafnaboltaleikjum sumarsins.

Senda á:
|