|
Nú rétt í þessu frumsýndi Jafningjafræðslan brakandi nýtt og skemmtilegt kynningarmyndband inn á facebook þar sem það hefur vakið mikil viðbrögð. Við skelltum myndbandinu einnig inn á Youtube fyrir þá sem eru ekki með facebook. Hægt er að berja myndbandið augum með því að smella HÉR.
Það er enginn svikinn af því að horfa á þetta myndband en það er sett upp í léttum og skemmtilegum dúr þar sem B-myndastemmingin er látin njóta sín í ystu æsar.
Þetta er í fyrsta skipti sem að Jafningjafræðslan gefur út slíkt myndband og vonandi ekki í það síðasta :)
Senda á:
|