| Götuhátíð í dag |
|
Fram koma: Fönksveinar, Kristmundur Axel, Sing for me Sandra, Original Melody, Ramses, Jón Jónsson, GÁVA, The assassin of a beautiful brunette, Friðrik Dór og Raggi Bjarna. Tónlistarmennirnir eru á öllum aldri og til gamans má geta að það munar 61 ári á yngsta og elsta flytjanda á hátíðinni. Þar fyrir utan verður grínarinn Þorsteinn Guðmundsson með gamanmál, hressir parkour strákar sýna listir sýnar ásamt götulistamanninum Wally og flóamarkaður Hins Hússins verður í fullum gangi en þar er hægt að kaupa sér notuð föt ásamt öðru glingri. Þá verða einnig gefnar pylsur, Fanta lemon, candy-floss og smokkar frá ONE á meðan byrgðir endast. Gestir og gangandi geta einnig unnið sér inn margskonar vinninga frá fjölmörgum fyrirtækjum í happadrætti Jafningjafræðslunnar þar sem miðinn kostar heilar 0 kr. Dregið verður á milli tónlistaratriða. Semsagt mikið að gerast niður á Austurvelli næsta föstudag kl. 14:00 og Jafningjafræðslan er búin að panta bongóblíðu. Þessi skemmtun er að sjálfsögðu ókeypis og vímulaus!
Hér eru nokkrar myndir frá Götuhátíðinni í fyrra:
|