|
Jafningjafræðsla Hins hússins, Knattspyrnusamband Íslands og Lýðheilsustöð hleyptu af stað átaksverkefninu „Bagg er bögg“ á blaðamannafundi sem að fram fór í höfuðstöðvum KSÍ á Laugardalsvelli í dag. Átakinu er ætlað að sporna við aukinni munntóbaksnotkun hjá ungu fólki, þar sem sérstök áhersla er lögð á unga knattspyrnuiðkendur. Andlit átaksins eru Alfreð Finnbogason landsliðsmaður í knattspyrnu og Sara Björk Gunnarsdóttir landsliðskona í knattspyrnu ásamt jafningjafræðurunum Rúnari Guðbjartssyni og Sigríði Ólafsdóttur, en þau spila einnig knattspyrnu með íslenskum félagsliðum samhliða störfum sínum hjá Jafningjafræðslunni.
Jafningjafræðslan, KSÍ og Lýðheilsustöð frumsýndu á fundinum veggspjöld og bæklinga sem voru hönnuð sérstaklega fyrir átakið. Þessu myndefni verður dreift til íþróttafélaga, skóla og félagsmiðstöðva og Jafningjafræðslan mun einnig halda fræðslufundi um munntóbak fyrir knattspyrnuiðkendur í 2. og 3. flokki í vetur.
Jón Heiðar Gunnarsson framkvæmdastjóri Jafningjafræðslunnar, Viðar Jensson verkefnastjóri á Lýðheilsustöð og Þórir Hákonarson framkvæmdastjóri KSÍ ræddu almennt um munntóbak og samstarfið á fundinum. Viðar benti fundargestum á að reykingar og áfengisnotkun hefur snarminnkað hjá íslenskum ungmennum síðastliðin ár en þrátt fyrir það sé munntóbaksnotkun einhverra hluta vegna í mikilli sókn hjá ungum drengjum. Jón Heiðar benti á að það eru gríðarlega miklar ranghugmyndir í gangi um munntóbak hjá ungu fólki og að íþróttir og munntóbak eigi aldrei samleið. Þá sagði Þórir að það væri mikil ánægja með verkefnið af þeirra hálfu og að það væri í raun siðferðisleg skylda KSÍ að sporna við munntóbaksnotkun hjá íþróttafólki.
Senda á:
|