|
Jafningjafræðslan og VÍS buðu landsmönnum í allsherjar sumarfagnað niðri á Austurvelli kl. 14 í dag. Götuhátíðin fór ótrúlega vel fram en eins og sést á meðfylgjandi myndum þá var bongóblíða í miðbænum. Fjöldi fólks safnaðist saman og naut veðurblíðunnar við ljúfa tóna og þá var einnig í gangi flóamarkaður og allskonar sprell s.s. leiktæki og götulistamenn. Jafningjafræðslan bauð gestum og gangandi upp á Nova pylsur, Fanta Lemon, Bergtopp, Candy Floss og ONE smokka en samhliða því fór fram smokkakennsla sem vakti mikla lukku og kátínu vegfaranda.
Það má því svo sannarlega segja að sumarið sé komið í Reykjavíkurborg og við viljum öllum þeim sem að hjálpuðu okkur við að koma þessari götuhátíð á koppinn sem var án efa ein sú glæsilegasta frá upphafi. Við viljum einnig þakka öllum þeim mikla fjölda sem að mætti niður á Austurvöll í dag og gerði sér glaðan dag, klapp fyrir ykkur. Það er kominn inn hellingur af ferskum nýjum myndum inn á myndasíðuna okkar hér til vinstri. Gleðilegt sumar!!





Senda á:
|