Elsku Egilsstaðir

Snemma að morgni þann 7. júlí lögðu fræðararnir Kristín, Kristján og Ragnhildur af stað til Egilsstaða, paradísar austursins.  Flogið var frá Reykjavíkurflugvelli og gekk flugferðin vel þrátt fyrir hræðslu eins fræðarans, en ekki skal nefna nein nöfn. Það var hann Freyr Ævarsson sem tók hlýlega á móti fræðurum, bauð þá velkomna í heimabæ sinn og keyrði þá beint í Sláturhúsið, menningarsetur heimamanna. Þar hófst frábær fræðsla með krökkum sem höfðu nýlokið við 10.bekk og voru sannarlega til fyrimyndar. Eftir fræðslu skelltu fræðararnir sér í sund, slátruðu börger yfir HM leik kvöldsins og höfðu það notalegt á Gistiheimili Olgu.

 

Unaðslegur morgunmatur að hætti Olgu tók við krökkunum næsta morgun áður en haldið var til Landsvirkjunar í Fljótsdal þar sem næsta fræðsla fór fram. Þar voru krakkar á aldrinum 16-20 ára. Dagurinn var einstaklega skemmtilegur, fræðslan fór vel fram og fengu fræðarar einkatúr um rafstöðina. Eftir það lá leiðin heim og var fræðurunum sértaklega minnisstætt hve hlýlegir Egilsstaðabúar voru og þakka þeir kærlega fyrir sig.

Senda á:

Facebook