Fyrirmyndar Jafningjafræðsla

Það verður seint sagt um starfsmenn Jafningjafræðslunnar að þeir bindi bagga sína sömu hnútum og samferðamenn sínir. Í síðastliðinni viku tókum við þátt í hvatningarátakinu „Til fyrirmyndar“ sem tileinkað var Vigdísi Finnbogadóttur og íslensku þjóðinni. Nú 30 ár eru liðin síðan við Íslendingar vorum til fyrirmyndar og kusum fyrst þjóða konu sem forseta í lýðræðislegum kosningum. Vigdís Finnbogadóttir er nú velgjörðarsendiherra Menningamálastofnunar Sameinuðu þjóðanna og stendur fyrir söfnun fyrir alþjóðlegri tungumálamiðstöð á Íslandi.

„Takk fyrir að vera til fyrirmyndar“ er yfirskrift átaksins sem  á að hvetja Íslendinga til að veita því athygli sem vel er gert. Jafningafræðarar Hins hússins hjálpuðu til við dreifingu á kortum auk þess að gefa gangandi vegfarendum sem áttu leið hjá kökusneið. Vigdís hefur verið farsæl í starfi hér heima og á alþjóðavettvangi og ættum við Íslendingar að taka Vigdísi til fyrirmyndar og veita öllu því góða í okkar lífi athygli, hvort sem um er að ræða stóra eða smáa hluti.

Hægt er að skoða heimasíðu átaksins á www.tilfyrirmyndar.is og viljum við einnig benda á síðu Vigdísar sem stendur fyrir stofnun á tungumálamiðstöðvarinnar, www.vigdis.is.  Taktu þátt og vertu til fyrirmyndar!

Senda á:

Facebook